tilkynning.
Virðulegur forseti. Ég tek undir þau sjónarmið sem fram hafa komið. Það er ótækt að þetta mál, þó að látið sé á það reyna að annað mál sé rætt hér næturlangt, dag eftir dag, málefni eins og endurskoðuð fjármálastefna ríkisstjórnarinnar, verði rætt með þeim hætti. Það er nefnilega út af einhverju sem er verið að endurskoða þessa fjármálastefnu. (Gripið fram í: Nákvæmlega.) Hv. þm. Birgir Ármannsson beitti því sem rökum rétt áðan að þetta hefði ekki tekið nema rúma þrjá tíma í fyrri umr. Þá voru aldeilis settar fram athugasemdir um að menn væru helst til bjartsýnir á forsendur stefnunnar. Síðan þá hefur ýmislegt breyst og varnaðarorð sem sett voru fram þá hafa því miður verið á rökum reist. Það er algjörlega fráleitt að við séum að ræða þessa breytingu á fjármálastefnu nú í sama andrúmi og þegar fyrri umr. var í gangi, svo sú afstaða mín liggi alveg fyrir hér.