tilkynning.
Virðulegi forseti. Það er erfitt að átta sig á því hvers vegna þingmenn kjósa að koma hér í upphafi þingfundar til að hefja samningalotu við forseta um það hvernig þingstjórninni verður háttað á næstunni. Það er ágætt að nota annan vettvang, þingflokksformannafund. Hér koma menn upp hver á eftir öðrum og segja: Heyrðu, það væri mátulegt að umræðan stæði frá því fyrir hádegi, vonandi, og til miðnættis og síðan myndum við ljúka henni á morgun. Slíkt samtal á heima á þingflokksformannafundi ef menn vilja semja um framgang þingstarfa. En á meðan ekki er hægt að nýta þann vettvang, og þar sem komið er fram í júní og jafn mörg mál óafgreidd og fyrir liggur, er ekki hægt að gera neitt annað en að nýta allan þann tíma sem mögulegt er og stjórnarandstöðuflokkar hafa viljað gera að undanförnu til að koma öllum sínum sjónarmiðum á framfæri. Og þá gerum við það. Auðvitað hljótum við að gera það. Við hljótum að gera kröfu til þess sameiginlega að allur mögulegur tími verði nýttur nú inn í sumarið til að ljúka þeim mikilvægu þingmálum sem liggja fyrir Alþingi.