tilkynning.
Herra forseti. Ég átta mig á að forseti þingsins glímir hér við vanda. Engu að síður verð ég að taka undir orð kollega minna, það gengur ekki að ræða mál eins og fjármálastefnu í skjóli myrkurs. [Kliður í þingsal.] Við erum m.a. að tala um atkvæðagreiðslu um tillögu forseta um hvernig við ætlum að haga þessum fundi. Við sjáum að þetta mál er sérstakt í eðli sínu. Við erum að fara að ganga í gegnum mesta viðsnúning í hagkerfinu í tæplega 30 ár, að hruninu undanskildu. Hér er 100 milljarða kr. sveifla í hagkerfinu og ríkið og hið opinbera fá högg upp á 40–46 milljarða árlega næstu fimm árin. Slíkt mál á ekki að ræða í skjóli myrkurs [Kliður í þingsal.] og það er fullkomlega eðlilegt fyrir alla þingmenn, sama í hvaða flokki þeir eru, (Forseti hringir.) að þetta mál sé rætt í björtu. Það er eina eðlileg krafan sem uppi er.