tilkynning.
Forseti gerir ekki ráð fyrir því að þær atkvæðagreiðslur sem eru á undan umræðum um þetta mál taki marga klukkutíma en gerir ráð fyrir að það verði enn mjög bjartur dagur þegar umræðan hefst um 15. dagskrármálið þannig að forseti tekur ekki undir málflutning um að einhver myrkraverk í þeim efnum standi til. Því fyrr sem við snúum okkur að því að greiða atkvæði og síðan að hefja umræður um dagskrármálið, því betra. Hér eru menn hálflentir inni í efnisumræðu um það mál sem einmitt stendur til að fara að ræða.
Forseti minnir á að menn eiga að halda sig við efnið. Hér er verið að ræða atkvæðagreiðslu um tillögu forseta um lengd þingfundar en ekki breytta fjármálastefnu.