149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

tilkynning.

[11:03]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Búið er að lýsa því yfir að það verði jafnvel þing í sumar. Þá sé ég ekki af hverju ekki er hægt að segja að við verðum hérna til kl. 8, svo verðum við til kl. 8 næsta kvöld og svo koll af kolli. Þannig að við verðum að vinna hér að degi til. (Gripið fram í: Við verðum hér bara í allt sumar?) — Í allt sumar. Það er verið að tala um það og verið að biðja um það og við skulum bara koma því á dagskrá. Það er alveg óþolandi að við þurfum að vera langt fram eftir kvöldi eða fram á nótt. Við getum bara tekið þetta á venjulegum vinnutíma.