149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

tilkynning.

[11:05]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég vil að það komi skýrt fram, hér hafa margir nefnt það, að hér er ekkert verið að boða neitt málþóf. Hins vegar er ástæða fyrir því að það þarf að tala mikið um þetta mál. Hv. þm. Birgir Ármannsson talaði um að síðast hefði það aðeins verið rætt í þrjá klukkutíma. Fjármálastefna er grundvallarplagg hverrar ríkisstjórnar sem á að duga í 48 mánuði. Þessi dugði í 14 mánuði. Það má breyta henni þegar stórkostleg vá er fyrir dyrum eða einhverjar hörmungar. Það sem nú blasir við minnir á það ef íslenskt knattspyrnulið fer til Ólafsvíkur og áttar sig á 18. mínútu á því að það rignir, grasið er ekki rosalega vel slegið og það er smámótvindur og heimtar þá að fara að breyta reglunum á leiknum. (Gripið fram í.) Hér eru hlutir sem blöstu við að gætu gerst og við þurfum eðlilega að tala um það. (Gripið fram í: Það er aldrei vindur í Ólafsvík.)(Gripið fram í.)