tilkynning.
Herra forseti. Við ræðum um atkvæðagreiðslu um lengri þingfund, að þingfundur megi standa lengur en til kl. 8 í kvöld. Við getum ekki fengið önnur svör en loðin frá forseta um það hvort þingfundur standi hér í alla nótt eða ekki. Ef ég reyni að lesa í orð forseta þá skil ég forseta þannig að talað verði í alla nótt ef umræðuefnið er fjármálastefna ríkisstjórnarinnar til 2022 og um minnkun skerðingar til öryrkja. Þá verði talað í alla nótt.
Það er alveg augljóst að þegar við erum að tala um fjármálastefnu sem gerir ráð fyrir hallarekstri á ríkissjóði, ekki í eitt ár heldur næstu árin, verðum við auðvitað að taka það vel til athugunar, ég tala nú ekki um þegar þrír tímar (Forseti hringir.) dugðu alls ekki til að fá stjórnarliða til að taka sönsum. (Forseti hringir.) Það er augljóst að það þarf lengri tíma við þessar aðstæður.