149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

tilkynning.

[11:07]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Spurningin um hvort þingfundur eigi að standa til miðnættis eða eitthvað langt fram eftir nóttu er frekar augljós, finnst mér, t.d. út af umræðu sem var hérna í 3. umr. á síðasta þingi um kosningar til sveitarstjórna sem voru búnar að standa í sex klukkutíma. 3. umr. er endanleg, alveg eins og fyrri umræða í þessu máli. (Gripið fram í: Hún er ekki endanleg.) Hún er endanleg upp á — (Gripið fram í.) 1. umr. getur endað, hún er ekki óendanleg, [Hlátur í þingsal.] hún er endanleg, ekki óendanleg, það er rétt. Allt í lagi. (Gripið fram í.) Þær voru búnar að standa í sex klukkutíma og voru alla vega sex klukkutímar eftir ef áfram héldi sem horfði þá, en þó var málið tekið af dagskrá. Það er alveg feikimikið sem þarf að ræða, alveg eins og í því máli, og það má alveg búast við því ef svipað yrði uppi á teningnum að umræða um það mál, þótt það sé fyrri umr. og geti tekið enda að lokum, geti (Forseti hringir.) staðið í tíu tíma þess vegna og þá er komið fram yfir miðnætti.