149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

tilkynning.

[11:09]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Sá sem hér stendur er ekki endilega mjög fylgjandi löngum umræðum um einstök mál, en hins vegar eru það ekki góð rök í þessu máli sem hv. þm. Birgir Ármannsson kom fram hér áðan að einungis hefði verið rætt um þetta mál, þ.e. fjármálastefnu, í þrjá klukkutíma síðast, (Gripið fram í.) vegna þess að sú stefna hefur ekki dugað vel. Því er sjálfsagt að ræða hana mjög ítarlega. Ég held að ekki veiti af þannig að ég beygi mig undir vald forseta, eins og ég hef gert undanfarnar nokkrar vikur um lengd þingfunda. Auðvitað hefur hann dagskrárvaldið og afhendir það ekki nokkrum einasta manni, hvar hann stendur í flokki. Þannig að ég greiði atkvæði með lengdum þingfundi, að sjálfsögðu.