tilkynning.
Herra forseti. Það hefur svo sem komið fram hérna en ég tel ástæðu til að skýra það frekar. Þessari eðlilegu beiðni stjórnarandstöðunnar fylgir hvorki fullyrðing, hótun né loforð um að hér verði talað sólarhringum saman. Ef svo fer að okkur dugar ekki tíminn til miðnættis til að tala um þetta stóra mál viljum við ekki að haldið sé áfram inn í nóttina með það. Það er ekki óeðlileg beiðni.
Hvað varðar hins vegar orð hæstv. fjármálaráðherra um að eðlilegra og betra væri að útkljá þetta á þingflokksformannafundi þá tek ég heils hugar undir það, algerlega heils hugar, en ég minni jafnframt á að hann er í eilítið betri stöðu en sú sem hér stendur til að reyna að haga málum þannig að það verði þá hægt að ræða þessi mál á þeim fundum og útkljá þar.