tilkynning.
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að biðjast afsökunar á að lengja þessa umræðu en vil bara taka undir orð forseta, samkvæmt þingsköpum gætu allir þingmenn í salnum tekið til máls um þingsályktunartillögu um breytta fjármálastefnu og hæstv. félagsmálaráðherra mælt fyrir máli sínu áður en klukkan yrði 12. Ég segi alveg eins og er, eins og nokkrir forverar sem hafa verið í þessum sal áður hafa sagt, að það skemmtilegasta sem ég veit er að mæta á næturfundi í júní á björtum og fögrum dögum. Ég skal mæta og hlusta sem ráðherra á fjármálaumræðuna einhvern tímann í kvöld. Það er alveg sjálfsagt mál. En mér heyrist hins vegar sem þingmenn stjórnarandstöðunnar, minni hlutans, komi hér upp hver á fætur öðrum til að tryggja að Miðflokkurinn þurfi ekki að tala um orkupakkann í nótt. Það eru einhver ný vísindi fyrir mér að sé það sé orðið aðalkeppikefli stjórnarandstöðunnar (Forseti hringir.) að tryggja að Miðflokkurinn fái ekki tækifæri, eins og hann hefur beðið um, (Gripið fram í.) til að ræða orkupakkann, þeirra mikilvægasta mál. (Forseti hringir.) Almennt séð held ég að allir hafi gaman af því að mæta í þingsal á kvöldin og nóttunni (Forseti hringir.) og tala á björtum og fallegum dögum.