tilkynning.
Virðulegi forseti. Ég ætla að segja það hér í púlti að ég styð tillögu forseta um lengdan þingfund, hvort sem hann stendur til kl. 12, 4 eða 6. (Gripið fram í.) Ég hef verið hér miklu fleiri nætur en hv. þingmaður sem hér talar og grípur fram í.
Eins og hér hefur komið fram þá eru það, ef allir þingmenn stjórnarandstöðunnar nýta sinn rétt til að tala í fjármálastefnunni, sirka sjö tímar. Hér er búinn að fara dýrmætur drjúgur hálftími í umræðu um atkvæðagreiðsluna. Ef við gefum okkur að ráðherra fái full andsvör og nýti allan sinn tíma þá er það klukkutími til viðbótar nema stjórnarandstaðan ætli að bresta á í mikil andsvör við sjálfa sig eða ætlist til að allir aðrir komi í andsvör við hana. Þá teygist þetta eitthvað eðli máls samkvæmt.
Ég held að það verði ekki svo að allir taki til máls um þetta mál. Það er ekki reynslan. Það er vissulega gott að ræða það og það er nauðsynlegt, ég tek undir það. Við höfum til þess nægan tíma áður en miðnætti gengur í garð.