tilkynning.
Forseti. Bara svo að þeir sem heima sitja skilji hvers vegna þessi hringrás í gangi hérna þá er það náttúrlega vegna þess að forseta og þingflokksformönnum hefur ekki tekist að eiga málefnalegt samtal um það hvernig haga eigi þessum fundi.
Forseti hefur dagskrárvaldið. Hann ræður þessu algjörlega sjálfur. Það er skiljanlegt að forseti sé orðinn þreyttur á næturfundum en hann er tilbúinn að halda áfram. Hann er þreyttur á málþófi sem klárlega er búið að vera í gangi og er það lengsta — er það ekki komið fram yfir mörkin? Það lengsta sem hefur haldið verið. En að forseti sé orðinn þreyttur á því réttlætir það ekki að beita því gegn hinum minni hlutanum sem er hér á málefnalegum forsendum, tilbúinn að taka þátt í þingstörfum og vill ræða málefnalega mál ríkisstjórnarinnar og vill virkilega að mörg mál ríkisstjórnarinnar fái framgang og geti klárast.
Ég bið forseta: Ekki steypa minni hlutunum saman í einhverja eina blokk. Við erum ekki í liði með Miðflokknum þegar kemur að þessum málum. Við erum með stefnu sem er mjög ólík stefnu Miðflokksins. Við viljum fá að ræða þau mál sem ræða þarf, málefnalega. Ég bið forseta um að virða það. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)