149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

tilkynning.

[11:24]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hélt að hann hefði talað alveg nógu skýrt. Það liggur fyrir dagskrá með 46 málum og mikil vinna bíður og forseti var svo mikill bjartsýnismaður að hann gerði ráð fyrir því að mögulegt væri að ná samkomulagi um að ganga eitthvað á þessa dagskrá í dag og í kvöld. Fari hins vegar svo að umræður um 15. og 16. dagskrármálin standi fram að miðnætti eða eitthvað lengur mun forseti ekki taka fleiri mál fyrir. Hann getur eiginlega ekki talað skýrar í þeim efnum. Þetta kalla ég ekki hótun heldur að upplýsa hv. þingmenn um ætlan forseta og teldist ekkert óskapleg uppskera þótt tækist að ræða tvö mál á þessum degi.