149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

tilkynning.

[11:26]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Stundum er betra að taka krók og fara lengri leið og maður kemst fyrr á áfangastað. Þessi dagskrárliður hér gæti kannski stytt umræðuna. Ég held að mig skorti 33 ár í þingreynslu miðað við hæstv. forseta. Ég ætla þó að leyfa mér að nefna að ef hæstv. forseti opnaði einungis á að þessi umræða stöðvaðist kl. 12 og byrjaði aftur daginn eftir held ég að við tveir gætum verið býsna sammála um að miklar líkur væru á því að hún jafnvel kláraðist í dag og í kvöld. Hér er ekki um að ræða neinar hótanir. Stundum þarf fólk að sýna sveigjanleika til að ná málum fram en ekki vera einstrengingsleg. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )