149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

tilkynning.

[11:27]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Nákvæmlega það sem hv. þm. Logi Einarsson sagði um málið. Forseti stillir dagskránni þannig upp að fyrst eru atkvæðagreiðslur, svo er þessi stóri veggur sem er fjármálastefna. Hann ætlar bara að hafa öll önnur mál þar fyrir aftan. Því ræður forseti. Hann getur alveg tekið fjármálastefnuna og hleypt máli öryrkja og eldri borgara, lífeyrisþega, almannatryggingamálinu, sem er mikil réttarbót, að á dagskrá. Hann getur það, hann ræður því. Hann getur gert það núna, strax og ég er búinn með þessa ræðu getur hann staðið upp og breytt dagskránni en hann ákveður að stilla fjármálastefnunni upp og leyfa hinu að sitja eftir, það er raunverulega staðan. Að kasta því yfir á þann minni hluta sem er búinn að vera mjög málefnalegur þegar kemur að dagskrá þingsins, frjálslyndi minni hlutinn, að við séum einhvern veginn ábyrg fyrir því gengur ekki. Það heiti „collective responsibility“ eða samábyrgð, að gera fólk samábyrgt eða refsa öðrum fyrir aðgerðir annarra. Það er kannski eitthvað sem hentar hæstv. forseta og stjórnunarstíl hans (Forseti hringir.) en það hentar varla hugmyndafræði hæstv. fjármálaráðherra að láta okkur bera ábyrgð á Miðflokknum. Það er eins og hið ófrjálslynda vinstri hegðar sér í dag og ég trúi því ekki að fjármálaráðherra vilji það.