149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

tilkynning.

[11:28]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég styð tillögu forseta um lengdan þingfund. Ég treysti því að umræðan um fjármálastefnu tæmist ekki í dag, enda er þetta fyrri umræða. Málið á eftir að fara til nefndar og koma hingað aftur til umræðu og væntanlega geta þingmenn komið á framfæri hugmyndum sínum um breytingar ef einhverjar eru. Þannig að ég treysti því að þetta mál klárist ekki í dag.

Við höfum staðið hér í þrjú korter. Ég hlakka mjög til að fá að greiða atkvæði um ýmis góð mál sem eru á dagskrá. Ég leyfi mér að nefna lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra og þingsályktunartillögu um stofnun ráðgjafarstofu innflytjenda. Ég lít á t.d. þessi mál sem nokkuð stórar stundir í sögu Alþingis og hlakka til að greiða atkvæði um þau, hvenær sem við komumst í það.