dagskrártillaga.
Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:
„Við undirrituð gerum það að tillögu okkar, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. þingskapalaga, að dagskrá næsta fundar verði svohljóðandi:
1. Félagsleg aðstoð og almannatryggingar (framfærsluuppbót og meðferð atvinnutekna), 954. mál, lagafrumvarp félags- og barnamálaráðherra. — 1. umr. Ef leyft verður.
2. Breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018–2022, 953. mál, þingsályktunartillaga fjármála- og efnahagsráðherra. — Fyrri umr. Ef leyft verður.“
Og síðan frá 3 til og með 32 þau mál önnur sem á dagskrá þessa fundar eru í réttri röð. Þannig er dagskrártillagan.
Forseti spyr: Má ekki hlífa mönnum við því að lesa alla dagskrána? Hún er algerlega óbreytt að þessu leyti nema hvað þessum tveimur málum, nr. 15 og 16, er víxlað.
Liggur það þá sæmilega skýrt fyrir? (Gripið fram í.)