149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

heilbrigðisstefna til ársins 2030.

509. mál
[11:55]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég vil bara minna fólk á fjármálaáætlun þar sem stefna stjórnvalda er hverju sinni. Þar koma einmitt fram fjárheimildir fyrir þær aðgerðaáætlanir sem fylgja þessari heilbrigðisstefnu þannig að aðgerðaáætlanirnar koma tvímælalaust til kasta Alþingis. Bara til að hafa það alveg á hreinu. Ekki gleyma fjármálaáætluninni.