149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

heilbrigðisstefna til ársins 2030.

509. mál
[11:57]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Við í Miðflokknum verðum á gula takkanum hvað varðar þessa heilbrigðisstefnu. Ég hef lagt fram nokkrar breytingartillögur við hana sem ég tel til bóta. Landsmenn líta á kerfið okkar sem félagslegt og það þýðir að við notum okkur samninga í gegnum Sjúkratryggingar Íslands þannig að allir hafi tækifæri til að njóta þeirrar þjónustu sem ber að veita lögum samkvæmt.

Það vantar veigamikla þætti inn í þessa stefnu. Sérstaklega vil ég benda á málefni aldraðra, geðheilbrigðisþjónustu og endurhæfingu svo að ekki sé minnst á lýðheilsu. Það er mikil áhersla lögð á Landspítala við Hringbraut og ég tel það mikið óráð. Ég ítreka að mikið samráðsleysi hefur einkennt alla þessa umræðu.