149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[15:23]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra. Það sem liggur í þessu er að sporin hræða. Ég held að það sé alveg ljóst að mjög lítið samráð hefur verið haft við sveitarfélögin þegar sú stóra ákvörðun var tekin að frysta greiðslur úr jöfnunarsjóði. Sveitarfélögin mótmæltu þessu harðlega eins og hefur komið fram. Þess vegna óttast maður að þessi breyting á fjármálastefnunni geti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir sveitarfélögin. Eins og hæstv. ráðherra nefndi réttilega ber að hafa samráð við sveitarfélögin í þessum efnum og þess vegna er mjög mikilvægt að þau fái alla þá upplýsingagjöf sem er þeim algerlega nauðsynleg.

Mig langaði bara í lokin að fá það fram hjá hæstv. ráðherra hvort hann sé tilbúinn að beita sér fyrir einhvers konar stuðningi við sveitarfélögin í ljósi þess sem fram undan er og lagt er upp með í þessari stefnu.