breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegi forseti. Bara þannig að þetta sé sagt einu sinni enn: Það hefur engin ákvörðun verið tekin um að skerða framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Það var ein af undirliggjandi forsendum í framkominni fjármálaáætlun að samkomulag myndi takast um það, en án samkomulags verður það frumvarp aldrei lagt fram hér á þinginu. Þetta hef ég sagt margoft þó að menn hafi viljað skilja það með öðrum hætti.
Það liggur fyrir að ekki mun takast samkomulag um það og því verður tekið tillit til þess við afgreiðslu málsins hér á þinginu. Þetta er ósköp einfalt. Hins vegar verð ég að segja alveg eins og er að mér fannst það nú ekki alveg úr lausu lofti gripið að þar kynni að vera eitthvert svigrúm vegna þess að jöfnunarsjóðsframlagið hefur tekið breytingum til hækkunar þar sem það hangir í ákveðnu hlutfalli við heildartekjur ríkisins sem hafa verið að aukast mjög á undanförnum árum. Sú viðbótarhækkun sem ella hefði orðið á næstu árum var aðferðafræði sem ég taldi að gæti gengið. En það virðist ekki vera.