149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[15:26]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Síðasta fjármálastefna átti að duga í fimm ár en hún rétt lifði í rúmt ár. Við erum að upplifa hér einn mesta viðsnúning í hagkerfinu í tæp 30 ár að hruninu undanskildu. Ríkisstjórnin hikar ekki við að þakka sér þegar vel gengur og samkvæmt því ætti ríkisstjórnin sömuleiðis að bera ábyrgð þegar illa gengur. Á þetta bentum við í fyrra þegar við gagnrýndum að óvarlegt væri að gera ráð fyrir 14 ára samfelldum hagvexti sem þekkist nánast ekki í Íslandssögunni. Þá vorum við köllum bölsýnisfólk með svartsýnisraus.

Við sjáum að sveiflan í hagkerfinu núna er um 100 milljarðar kr. og að öllu óbreyttu mun afkoma hins opinbera versna um 40 milljarða og á hverju ári næstu fimm árin um 40–46 milljarða. Þetta er ekki bara í ár. Til samanburðar væri hægt að nota þessa upphæð til að afnema krónu á móti krónu skerðingu á öryrkjum þrisvar sinnum. Það væri hægt að fjórfalda allt barnabótakerfi fyrir þessa upphæð, eða tvöfalda alla þá fjármuni sem renna til háskólanna. Þetta er staðan sem blasir við vegna hagstjórnar þessarar ríkisstjórnar.

Það er því sömuleiðis ljóst, herra forseti, að halli verður á ríkissjóði að öllu óbreyttu næstu árin en boðaðar eru mótvægisaðgerðir og hagræðingaraðgerðir eins og þar segir. Það dugar ekki bara að þurrka upp afganginn af ríkissjóði, herra forseti.

Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hverjir eiga að taka niðurskurðinn á sig? Eru það aldraðir, námsmenn, kennarar og löggur, hjúkrunarfræðingar? Öryrkjar? Verða sömu hópar skildir eftir á samdráttarskeiðinu og voru skildir eftir á hagvaxtarskeiðinu?

Þetta, herra forseti, er milljónkrónuspurningin.