breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegi forseti. Það er alveg ótrúleg nálgun á það verkefni sem við erum með í lögum um opinber fjármál, með því að setja saman fjármálastefnu og gera fjármálaáætlun til næstu ára, að leggja aðaláherslu á að menn haldi sig við áætlanir frá árinu 2017 en minni áherslu á það hvað er rétt að gera við þær aðstæður sem eru uppi núna. Hv. þingmaður hefur talað fyrir hærri sköttum í landinu. Hann hefur talað fyrir meiri eyðslu í opinberum fjármálum. Þetta hefur verið hans alfa og omega í umræðu um opinber fjármál.
Ég spyr þá bara: Hefði verið gott að vera núna að hækka skatta um 25–35 milljarða á ári, eins og Samfylkingin lagði til, og vera með hærra útgjaldastig í opinberum fjármálum, eins og Samfylkingin lagði til, en við þó erum með? Ég held ekki. Hvar eru merkin um að sú stefna sem við höfum verið að starfa eftir hafi ekki skilað árangri? Birtast þau í verðbólgunni? Við höfum haft eina stöðugustu verðbólgu í mörg undanfarin ár sem við höfum lengi séð. Hefur það birst í vaxtastiginu? Vextir hafa lækkað og hafa sjaldan verið lægri, vaxtamunur við útlönd sjaldan lægri, t.d. við dollarann. Er það í skuldum ríkissjóðs sem við sjáum veikleikana? Nei, við erum búin að ná markmiðum okkar og umfram það. Er það í öðrum skuldbindingum? Nei, við höfum verið að greiða fyrir fram inn á lífeyrisskuldbindingar. Hefur það kannski birst í lánshæfismatinu að við höfum verið að byggja á óraunhæfum áætlunum, að við höfum ekki verið að standa okkur sem skyldi í þágu fólksins í landinu? Nei, það hefur ekki birst í lánshæfiseinkunnum Íslands. Hefur það birst í efnahag heimilanna? Nei, hann hefur batnað. Hefur það birst í efnahag fyrirtækjanna? Nei, ekki þar. Hvar eru merkin um að stefnan sem við höfum verið að fylgja hafi ekki skilað árangri?
Og svarið við spurningunum, hv. þingmaður: Nei, við erum ekki að fara að loka fjárlagahallanum með því að ganga á þá í samfélaginu sem eru í veikastri stöðu. Þeir hafa fengið að njóta góðs af hagvaxtarskeiðinu sem liðið hefur. Skoðið bara tekjusagan.is. Það er mjög auðvelt að sjá það.