breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegi forseti. Það er eins og fram hefur komið að við munum taka til endurskoðunar einstaka fjárfestingarverkefni sem við nánari athugun er hægt að færa til í tíma. Við munum sömuleiðis, eins og boðað hefur verið, fresta um eitt ár áformum um lækkun bankaskatts en leggjum áherslu á að lækkun bankaskattsins verði engu að síður lögfest. Þetta eru sömuleiðis umbótaverkefni. Við viljum fá hagræðingu af því að byggja opinbera þjónustu á stafrænum samskiptum. Við erum að endurmeta ýmis önnur útgjöld og ætlumst til þess að opinber rekstur sé hagkvæmur og skilvirkur og það skili árangri að taka tæknina upp hjá hinu opinbera. En við ætlum ekki að fara leið hv. þingmanns um hærri skatta, hærri fjármagnstekjuskatt. Við þessar aðstæður er í raun alveg með ólíkindum að menn komi hér bara af fullum krafti og boði hærri skatta á ferðaþjónustuna. Við ætlum ekki að fara þá leið.