breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegur forseti. Það var áhugaverð upptalning hér áðan um hversu æðislegt við hefðum það, samt er efnahagsáfall eða þjóðarvá. Á sama tíma leggur ríkisstjórnin sérstaka áherslu á að ekkert í opinberum fjármálum hafi orsakað það efnahagsáfall eða þá þjóðarvá, en hrósar aftur á móti sjálfri sér fyrir þá efnahagsuppsveiflu sem orðið hefur. Þetta passar ekki saman, virðulegi forseti.
Mig langaði að spyrja ráðherra út í þau lagaákvæði sem fjalla um endurskoðun fjármálastefnunnar. Þar eru notuð mjög stór orð, efnahagsáfall eða þjóðarvá, eða aðrar aðstæður sem ógerlegt sé að bregðast við með tiltækum ráðum. Þessar aðrar ástæður hljóta að vera jafn veigamiklar og efnahagsáfall eða þjóðarvá.
Mig langaði að spyrja ráðherra: Hver eru þessi tiltæku ráð sem dugðu ekki til að bregðast við þessu efnahagsáfalli og þjóðarvá? Og hvort er um að ræða efnahagsáfall eða þjóðarvá, nema hvort tveggja sé? Mér finnst skorta tilfinnanlega rökstuðning, hvað varðar endurskoðunarákvæði laga um opinber fjármál, fyrir því að fara þurfi í endurskoðun á fjármálastefnunni. Ég get búið til ýmiss konar rökstuðning, en ég finn hann samt ekki, ég finn ekkert af því sem ég gæti hugsað mér að túlka megi sem rökstuðningur fyrir því að endurskoða eigi stefnuna.
Ég kalla einfaldlega eftir þeim rökstuðningi: Hver eru þessi tiltæku úrræði? Hvort er um efnahagsáfall eða þjóðarvá að ræða?