breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegi forseti. Við byggjum í öllum grunnatriðum hagkerfið okkar á markaðsbúskap. Ég vil mótmæla því, sem hv. þingmaður sagði hér áðan, að ríkisstjórnin hefði eignað sér allt hagvaxtarskeiðið. Það er ekki þannig. Við teljum hins vegar að við höfum nýtt hagvaxtarskeiðið vel til að búa í haginn fyrir framtíðina, að við höfum verið að starfa í samræmi við grunngildi laga. Af því getum við verið stolt í dag þegar þessar aðstæður skapast.
Í markaðshagkerfi geta hlutir gerst eins og að flugfélag fari á hausinn. Við erum líka samfélag sem byggir á nýtingu náttúruauðlinda. Það getur komið fyrir að aflabrestur verður eða samdráttur af þeim völdum að viðskiptakjör okkar versna á erlendum mörkuðum. Það getur ýmislegt gerst. Eitt af því sem við erum, já, að draga lærdóm af undanförnum árum með er að kannski hefði átt að vera meiri sveigja í stefnunni eða eftir atvikum áætluninni. Gott og vel. Ég held að það sé ekki óeðlilegt, fyrstu árin eftir að við erum að framkvæma nýju lögin, að upp komi einhverjir slíkir hlutir og við erum að hlusta. Þess vegna erum við að bregðast við með óvissusvigrúminu. En aðalatriðið er hvort við höfum verið að ná okkar markmiðum heilt yfir, ekki hvort það sé hræðilegur skellur að þurfa að endurskoða stefnuna.