149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[15:45]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Það er alveg rétt hjá hæstv. fjármálaráðherra að heimilin lærðu mjög af síðasta hruni og höguðu sér með allt öðrum hætti í þessari uppsveiflu og það gerði atvinnulífið líka. En það gerði ríkissjóður ekki. Nákvæmlega sömu hagstjórnarmistök hafa verið gerð í opinberri fjármálastjórn nú og þá. Ef marka má orð hæstv. ráðherra telur hann efnahagsstefnu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á árunum fyrir hrun væntanlega vera merki um stórkostlegt efnahagslegt afrek.

Hér er horft til hagspár sem gerir ráð fyrir því að það verði undraverður viðsnúningur strax á næsta ári. Fjármálastefna sem gerir ráð fyrir því og treystir raunar á það mun ekki standast öðruvísi en sú spá gangi eftir. Á sama tíma er dráttarvagninn í hagkerfinu, ferðaþjónustan, að segja: Það er ekkert í okkar tölum sem bendir til þess að þetta verði raunin. Seðlabankinn sjálfur hefur komið með fráviksspá sem segir að ef ótti ferðaþjónustunnar raungerist verði hagvöxtur á því tímabili sem við erum að ræða, á næstu þremur árum hið minnsta, að jafnaði um 1% minni á ári hverju (Forseti hringir.) en fjármálastefnan gerir ráð fyrir. Hvernig ætlar hæstv. ríkisstjórn að bregðast við? (Forseti hringir.) Væri ekki rétt að horfa til aukinnar varfærni í opinberum fjármálum í þeirri stöðu þegar nú þegar er varað við því að forsendur (Forseti hringir.) þessarar fjármálastefnu, ósamþykktar, séu brostnar?