breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegi forseti. Það er nú þannig með þá reglu sem var látið reyna á í þessu tiltekna dómsmáli og hins vegar þá lagareglu sem hv. þingmaður er að vísa til að báðar eiga þær lagareglur það sammerkt að vera viðleitni stjórnvalda til að dreifa takmörkuðum fjármunum með sem sanngjörnustum hætti. Það er ekkert annað sem býr að baki þeim lagareglum og öðrum sem mætti tiltaka í því samhengi. Vilji menn hins vegar kippa þeim úr sambandi til að tryggja að það flæði meira fé úr ríkissjóði til þeirra sem þurfa að treysta á bótakerfin verður auðvitað á endanum að svara því: Hvar á að stoppa? Hvar á að stoppa í milljarðatugunum sem fylgja? Hvaðan á að taka þá fjármuni? Úr hvaða málaflokkum á ráðstafa þeim?
Það er auðvitað enginn málflutningur að koma hér og segja bara: Við skulum afnema (Gripið fram í.) allar skerðingar og við skulum ekki láta breytingar á milli ára taka mið af almennt umsömdum kjarabótum í landinu (Forseti hringir.) heldur bara leyfa því að þróast einhvern veginn. (Forseti hringir.) Við höfum verið að bæta mjög verulega í þessi kerfi og allar opinberar tölur sýna það. En við getum haldið áfram að ræða nákvæmlega hvernig við eigum að skipta því takmarkaða fé sem við höfum.