149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[15:54]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ríkisstjórnin hefur afrekað það á sínum stutta líftíma að hafa sett sér fjármálastefnu og fjármálaáætlun sem ekki reyndust nægilega varfærnar og er það ekki í anda laganna um opinber fjármál. Það verður að segjast eins og er að maður er ekki bjartsýnn á að ríkisstjórninni takist betur upp að þessu sinni, enda bendir margt til þess að enn sé ríkisstjórnin ekki nægilega meðvituð um stöðuna, a.m.k. ekki um alvarlega stöðu ferðaþjónustunnar. Rétt er að vekja athygli á ábendingum forsvarsmanna ferðaþjónustunnar og þá sérstaklega fyrir landsbyggðina hvað þetta varðar.

Í áliti meiri hluta fjárlaganefndar við gildandi fjármálastefnu frá því í mars 2018 er bent á að yfirgnæfandi fjöldi flugsæta sem er í boði til Íslands sé á hendi tveggja flugfélaga og það auki áhættu í ferðaþjónustunni. Allir vita hvernig fór fyrir öðru þessara tveggja flugfélaga, flugfélaginu WOW, og er það í raun önnur af tveimur meginástæðum þess að hér er lögð fram endurskoðuð fjármálastefna. Miðflokkurinn stóð fyrir sérstakri umræðu síðastliðið haust um stöðu millilandaflugfélaganna og lýsti miklum áhyggjum yfir þeirri stöðu sem þar var og er og m.a. ræddum við hvort eftirlitsaðilinn, Samgöngustofa, hefði fylgst nægilega með rekstri flugfélagsins WOW. Það kom síðan í ljós að reksturinn var í miklum ólestri, eins og við þekkjum, og flugfélagið varð gjaldþrota. Það er vel þess virði að velta því fyrir sér hvort eftirlitsaðilinn hafi verið nægilega öflugur og hvort það hefði átt að grípa inn í reksturinn á einhvern hátt til þess að reyna a.m.k. að lágmarka það tjón sem hér varð. Það hefði vel verið hægt, herra forseti, að gera áætlanir um það hversu truflandi áhrif samdráttur í ferðaþjónustunni hefði á skatttekjur ríkisins, en fyrir því var ekki að fara.

Meiri hluti fjárlaganefndar á sínum tíma hafði sem sagt áhyggjur af aukinni áhættu í ferðaþjónustunni við gerð fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar en gerði í rauninni ekkert með þær áhyggjur. 2. minni hluti, sá sem hér stendur, benti á það í áliti sínu að í ljósi þess að um stóran áhættuþátt væri að ræða ætti meiri hlutinn að leggja mat á hann í fráviksspá. Slíkt var ekki gert af hálfu ráðuneytisins. Í ljósi þeirrar stöðu sem er komin upp er mikilvægt að ráðherra leggi áherslu á frekari fráviksspár við framlagningu fjármálastefnu og fjármálaáætlunar sem og vegna annarra mikilvægra þjóðhagsmála.

Með fjármálastefnunni eru sett fram almenn markmið um þróun opinberra fjármála. Í 10. gr. laga um opinber fjármál er fjallað um endurskoðun fjármálastefnu. Þannig er gert ráð fyrir að markmið fjármálastefnunnar séu einungis endurskoðuð ef aðstæður eru óviðráðanlegar, svo sem vegna þjóðarvár eða alvarlegs efnahagsáfalls. Í nýju stefnunni er ekki skilgreint hvað séu áföll af því tagi, t.d. sem hlutfall af landsframleiðslu, til að þau teljist raska gildandi fjármálastefnu. Ráðherra verður að gera grein fyrir þeim hlutföllum og því hver stærð áfallanna þarf að vera til að breyta þeirri stefnu. Greiningar þurfa að liggja fyrir um hversu stórt heildaráfallið þarf að vera til þess að það kalli á endurskoðaða fjármálastefnu. Þetta er oft matskennt og birtist okkur í dag. Fagleg greining ráðuneytisins verður að liggja fyrir. Hvenær er þörf á endurskoðun stefnunnar? Hvar eru vikmörkin? Við hvaða stærðir er miðað? Hversu stór þurfa áföllin að vera til að ráðast þurfi í endurskoðun?

Gerð hefur verið grein fyrir áföllunum en ég tel að hæstv. ráðherra eigi að leggja fram greiningar og sviðsmyndir sem hjálpi Alþingi að meta hvenær efnahagsáföll, sem hlutfall af efnahagsstærðum, eru orðin það stór hvert fyrir sig og síðan samanlagt að ástæða sé til að leggja fram nýja fjármálastefnu. Eðlilegt hefði verið að leggja fram sérstakan kafla í þingsályktunartillögunni þar sem farið er yfir þetta. Eðlilegt er að hæstv. ráðherra hefði lagt fram umræðugrundvöll fyrir þingið hvað þetta varðar. Þetta eru áföll. En hvenær eru áföll það mikil að breyta þurfi stefnunni? Ég tel, herra forseti, að það vanti faglega greinargerð um það. Áhrifin á almenning, fjölskyldur og fyrirtæki eiga að birtast í sviðsmyndum. Það væri vandaðri og eðlilegri framsetning og myndi styrkja umræðuna hér verulega.

Ríkisstjórnin lagði til grundvallar við gerð núverandi fjármálastefnu forsendur Hagstofunnar, eins og henni ber að gera. Hins vegar tel ég að ríkisstjórnin hafi ekki gætt nægilegrar varúðar við beitingu þeirra, sérstaklega þegar litið er til þess hversu lengi hagvaxtarskeið hefur varað, sem er að mati sérfræðinga lengsta hagvaxtarskeið í efnahagssögu landsins. Ég tel að umræður um nýja fjármálastefnu hefðu getað orðið mun markvissari og dýpri ef umræðunni hefði verið frestað þar til lögbundið álit fjármálaráðs hefði legið fyrir. Eins og staðan er núna ber fjármálaráði, samkvæmt 10. gr. laga um opinber fjármál, að veita Alþingi umsögn sína um tillöguna og hvort fullgilt tilefni sé til endurskoðunar á gildandi stefnu.

Ég vísa til fyrri ábendinga minna um sviðsmyndir og heildarmat á umfangi breytinga sem kunna að leiða til nýrrar stefnu. Því er ekki nóg að tilefni sé til endurskoðunar heldur þarf að vera fullgilt tilefni til hennar, eins og segir í lögunum. Því ber aftur og enn að leggja áherslu á mikilvægi þess að hæstv. ráðherra leggi fram faglegar greiningar á því hvenær fullgildu tilefni hefur verið náð til endurskoðunar en byggi ekki á óskilgreindu mati sínu á því hvort fullgildu tilefni hafi verið náð, en hæstv. ráðherra nefndi áðan í andsvari að hann legði m.a. til grundvallar almenna skynsemi. Þær greiningar myndu hins vegar gagnast faglegri umræðu á Alþingi, eins og tilgangur laganna er, sem og fjármálaráði til að meta hvort framlagðar ástæður ráðherra nái kröfu laganna um að fullgilt tilefni sé til endurskoðunar á stefnunni nú. Varla getur talist tilefni til umræðu um breytingu á rúmlega ársgamalli fjármálastefnu, sem í eðli sínu er ætlað að lifa í fimm ár án breytinga, án þess að fyrst liggi fyrir sérfræðiálit færustu hagfræðinga um hvort fullgilt tilefni sé til þessarar umræðu. Ég geri þó ekki lítið úr því að gott er að hæstv. ráðherra ræði sem oftast við okkur í þinginu um fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar en hugsanlega er fullmikið í lagt að leggja fram breytingartillögu án þess að fyrir liggi lögbundin umsögn, ég legg áherslu á það, fyrrgreindra lykilsérfræðinga um tilefnið.

Herra forseti. Ég hefði talið affarasælast að leggja tillöguna og umsögn fjármálaráðs fram samhliða. Ástæðan er sú að ef skilyrði fyrir endurskoðun fjármálastefnu eru ekki fyrir hendi er gert ráð fyrir að ríkisstjórnin leggi fram aðgerðir í fjármálaáætlun, samanber 5. gr. laga um opinber fjármál, sem leiði til þess að markmiðum gildandi fjármálastefnu verði náð. Ekki verður annað séð en að ríkisstjórnin gangi út frá því að umsögn ráðsins verði henni hagfelld. Að mínu mati hefur hæstv. ráðherra ekki búið Alþingi nægilega vel að þeim gögnum og greiningum, eins og ég nefndi áðan, þannig að skynsamlegt sé að hefja þá umræðu.

Ég sé það, herra forseti, að tíminn er langt kominn. Ég næ ekki að ljúka máli mínu í þessari ræðu og óska eftir að verða settur aftur á mælendaskrá. Að lokum gæti stefnan allt eins á þessu stigi málsins átt að snúast um breytingar á fjármálaáætlun með rökstuðningi um hvernig hún tryggi að núverandi stefnu sé framfylgt.