149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[16:07]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni og formanni fjárlaganefndar andsvarið. Það er svo sem alveg rétt sem kom fram í viðræðum við hæstv. forsætisráðherra á dögunum að ríkissjóður hefur náttúrlega ákveðnu hlutverki að gegna þegar dregur saman í efnahagslífinu. Hv. þingmaður spurði um skynsemi, hvað værir skynsamlegast að gera. Það að auka við opinberar fjárfestingar er jákvætt í samdrætti, ég held að við getum alveg verið sammála um það, en að sama skapi á ríkissjóður að halda að sér höndum þegar vel gengur í efnahagslífinu.

Hv. þingmaður spyr um varfærni í þeim efnum. Já, ég tel að það hafi ekki verið gætt nægilegrar varfærni þegar lýtur að því að í toppi hagsveiflunnar eru útgjöld töluverð og mikil og hefði átt að hafa meiri hemil á þeim og kannski leggja til hliðar til mögru áranna, eins og sagt er. Ég held að það sé ekki varfærni þegar menn gera ráð fyrir áframhaldandi hagvexti með sama hætti og gert var á einu lengsta hagvaxtarskeiði sem við höfum upplifað. Að því leytinu til tel ég að það hafi skort á varfærni þegar núgildandi stefna var lögð fram. Við sjáum að þetta eru mikil umskipti á mjög skömmum tíma. Það er gert ráð fyrir hagvexti allt tímabilið sem síðan snarsnýst við og ríkissjóður rekinn með halla næstu árin. (Forseti hringir.) Það hefur eitthvað farið úrskeiðis í þeirri vinnu á sínum tíma, ég held að hv. þingmaður geti verið mér sammála um það.