breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég get sagt að Miðflokkurinn hefur ekki neitt sérstaklega mótað sér stefnu hvað auðlegðarskatt varðar. Slík skattheimta þarfnast náttúrlega rannsóknarvinnu, skýrslugerðar um kosti og galla o.s.frv. Það hefur verið sjónarmið í þeirri skattlagningu að þá muni féð leita erlendis og þá er tilgangurinn kannski ekki réttur. En þetta er eitthvað sem við höfum ekki rætt innan okkar raða.
Ég vil þó segja um þær aðstæður sem við erum í núna að ég tel óskynsamlegt að fara í sérstakar skattahækkanir. Við þurfum að örva efnahagslífið og ég held að það sé hagfræðilega ekki alveg rétt á þessum tímapunkti. En hins vegar tel ég skynsamlegt af ríkisstjórninni að hafa frestað lækkun bankaskattsins. Ég hef talað fyrir því að svo beri að gera og hef ekki verið sammála þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar að létta á skattlagningu á fjármálafyrirtækin. Ég minni á að það er ekki bara bankaskatturinn sem átti að lækka núna heldur er búið að lækka gjaldið til innstæðutryggingarsjóðsins og síðan lækkar einnig gjald til Fjármálaeftirlitsins, þannig að það stóð til að lækka þrjá skattstofna á fjármálafyrirtækin. Ég tel að ríkisstjórnin hafi gert rétt með því, eins og ég skil þá hefur komið fram hjá hæstv. fjármálaráðherra að til standi að fresta lækkun á bankaskatti. Þarna er eitthvað í skattheimtunni sem væri hægt að gera strax án þess að það hefði áhrif á almenning.