149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[16:18]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er mjög merkileg þingsályktunartillaga þar sem hún fjallar um breytingu á fyrri þingsályktun um fjármálastefnu. Þetta er ekki endurskoðuð þingsályktun eins og ég skil það, alla vega ekki miðað við 10. gr. laga um opinber fjármál. Þar er sérstaklega sagt að endurskoðun fjármálastefnu skuli ná til a.m.k. fimm ára. Ég kemst ekki upp úr þeim fáránleika sem birtist í þessari tillögu, að þetta nái frá 2018–2022, það sé verið að breyta eldri fjármálastefnu. Það er ekkert í lögunum sem gerir ráð fyrir því að hægt sé að breyta fjármálastefnu heldur er ný fjármálastefna til fimm ára bara lögð fram, fram í tímann en ekki aftur í tímann.

Þetta rímar dálítið skemmtilega, svo að maður komi því að, við það að tilgangur fjármálastefnu er að uppfylla tiltekin grunngildi. Það að leggja fram fjármálastefnu á að vera grundvöllur þess að grunngildin haldi. Með því að leggja fram fjármálastefnu ertu að sýna hvernig þú ætlar að fara varfærnislega með fjármál hins opinbera. Breyting á fjármálastefnu — ég skil ekki hvernig hún getur flokkast sem varfærnisleg í sjálfri sér. Það er verið að breyta skjali sem á að sýna varfærni. Þetta er svona eftir-á-varfærni og það getur aldrei verið varfærni. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður hafi pælt í einmitt þessu, hvort hann skilji 10. gr. með tilliti til þessarar þingsályktunartillögu, hvernig það passar saman.