149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[16:24]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég get tekið undir þetta með hv. þingmanni. Það sem ég lagði áherslu á í málflutningi mínum var að mér finnst það ekki nógu skýrt hvenær nákvæmlega þarf að endurskoða stefnuna. Við þurfum að hafa einhverjar leiðbeiningar um það. Hæstv. fjármálaráðherra talaði um skynsemi. Jú, gott og vel, það eru náttúrlega ákveðin rök út af fyrir sig og gott að vera skynsamur þegar kemur að fjármálastjórnun. En þurfum við ekki að hafa t.d. einhverjar prósentur, verri afkoma af landsframleiðslu en gert var ráð fyrir o.s.frv.? Hvenær erum við komin á þennan tímapunkt? Lögin eru nokkuð afgerandi með að það þarf að vera, eins og ég segi, þjóðarvá eins og sagt er. Það eru nokkuð stór orð þannig að ég hefði talið og lagði áherslu á það að við hefðum betri leiðbeiningar í þessum efnum.