149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[16:25]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Mig langar að fara nokkrum orðum um þessa fjármálastefnu í stuttri ræðu. Það fyrsta sem ég vil vekja athygli á er að fjármálastefna ríkisstjórnarinnar á að duga í fimm ár en þessi stefna dugði einungis í rúmt ár. Það er miður. Við sjáum sömuleiðis að viðsnúningurinn í hagkerfinu er sá mesti í tæplega 30 ár að hruninu undanskildu. Ég gat um það hér áðan, í andsvari mínu við hæstv. fjármálaráðherra, að ríkisstjórnin getur ekki einungis eignað sér góðan árangur í hagkerfinu en að sama skapi vísað ábyrgð á niðursveiflunni eitthvert annað. Auðvitað veit ég að hagkerfið er margslungið og það er margt sem gerist sem er ekki á forræði ríkisstjórnarinnar eins og loðnubrestur og annað slíkt, þannig að auðvitað gætir maður fullrar sanngirni hvað það varðar. En engu að síður er vert að nefna það sérstaklega að við vöruðum við því að stefnan sem við ræðum hér hafi einfaldlega verið óraunsæ. Með leyfi forseta, þá sagði ég í ræðu minni í fyrra um núgildandi fjármálastefnu sem við erum að breyta hér:

„Hér göngum við til atkvæða um stefnu sem á að gilda óbreytt í fimm ár. Þetta er stefna sem fær falleinkunn hjá nánast öllum hagsmunaaðilum sem hana hafa lesið. Stefnan er sögð vera ógn við stöðugleikann, vera óraunsæ, ábyrgðarlaus, óvarfærin, ómarkviss, óljós, ósjálfbær, óskýr, aðhaldslítil, varasöm og ótrúverðug. Þetta er mat sérfræðinga og hagsmunaaðila.“

Þetta sagði ég í fyrra um fjármálastefnuna og því miður er þetta að rætast. Við bentum sérstaklega á það úr þessum stól að stefnan byggðist á því að hér yrði samfelldur hagvöxtur í 14 ár. Nú þekki ég hagsöguna þokkalega vel og það hefur nánast bara aldrei gerst síðan Ísland byggðist. Við göngum í sjö, átta ára sveiflum iðulega. Það er óvarlegt að byggja svona lykilplagg, hvort sem það er fjármálastefnu eða fjármálaáætlun, á svo óvarfærnum forsendum.

Hæstv. ráðherra mun eflaust segja að hann sé skyldugur til að fara eftir spá Hagstofunnar en það er pólitísk ákvörðun hvað er í stefnunni annars vegar og í áætlun hins vegar. Þar er pólitíkin. Það vorum við að gagnrýna og ekki bara við í Samfylkingunni heldur fjölmargir hagsmunaaðilar, m.a. fjármálaráð. Fjármálaráð er sjálfstætt fyrirbæri sem ráðherra skipar. Þetta ráð sagði að þessi stefna væri óvarfærin. Það sagði að hér væri verið að vanrækja tekjuúrræði annars vegar og opinbera innviðauppbyggingu hins vegar. Það þarf ekkert að trúa Samfylkingarmanninum Ágústi Ólafi í þessum efnum. Það voru hagsmunaaðilar og sjálfstæðir matsaðilar sem bentu á þetta. Þetta á í sjálfu sér ekki að koma á óvart.

Nú erum við að upplifa sveiflu í hagkerfinu. Við erum komin í samdrátt, fyrsta samdráttinn síðan 2010, landsframleiðslan er að dragast saman í fyrsta sinn eins og við óttuðumst í fyrra. Þessi sveifla er um 100 milljarðar. Afkoma hins opinbera mun að öllu óbreyttu versna um 40 milljarða 2019, en hún mun líka versna næstu árin að öllu óbreyttu því að landsframleiðslan hefur minnkað. Hún er minni til frambúðar. Þó að hagvöxtur taki einhvern tíma aftur við sér þá er höggið til frambúðar og þetta högg, eins og stendur í fjármálastefnunni, er um 40–46 milljarðar á hverju ári næstu fimm árin. Þetta er engin smáupphæð. Með þessari upphæð gætum við tvöfaldað fjármuni í alla háskóla Íslands. Við gætum fjórfaldað barnabótakerfið fyrir þessa upphæð. Við gætum afnumið krónu á móti krónu skerðingu hjá öryrkjum þrisvar sinnum en ekki að einum þriðja eins og ríkisstjórnin er að gera í dag. Þetta er alvöruupphæð sem við erum að glíma við.

Ráðherra hefur talað um að grípa þurfi til hagræðingaraðgerða, hann hefur sagt það, en svarar litlu um hvers eðlis þær verði. Jú, hann hefur nefnt að fresta eigi lækkun bankaskatts um eitt ár. Það er nú allt og sumt. Hann hefur sömuleiðis sagt að þurrka eigi upp afganginn á ríkissjóði en það dugar ekki. Það dugar ekki til að mæta þessu höggi sem blasir við.

Við eigum eftir að fá svör. Hverjir munu taka höggið á sig? Eru það öryrkjar eða aldraðir? Eru það námsmenn? Eru það kennarar eða hjúkrunarfræðingar? Eru það löggur? Það þarf einhverjar aðgerðir. Ég hef talað fyrir réttlátara skattkerfi en ég vil hins vegar ítreka að ég er ekki að tala um að við skattleggjum okkur upp úr þessari niðursveiflu. En það er svo sannarlega hægt að hafa sanngjarnara skattkerfi. Ég sé enga sérstaka ástæðu til að hafa kerfi þar sem veiðileyfagjöld, sem eru gjöld fyrir aðgang að einum bestu fiskiauðlindum jarðar, séu svipuð og tóbaksgjaldið, gjald sem við leggjum á sígarettur, u.þ.b. 8–9% þjóðarinnar reykja. Ég hef alveg ófeiminn bent á að hér eru einstaklingar sem hafa breiðari bök en aðrir. Við höfum gríðarlega eignaójöfnuð, við höfum 1% landsmanna sem eiga meira en 80%. Það er hópur sem þolir vel hærri skattheimtu, ekki síst þegar samdráttur verður í hagkerfinu. Við eigum að vera alveg ófeimin við að benda á lausnir af þessu tagi.

Í andsvari mínu við ráðherrann varðandi ferðaþjónustuna — svo að ég undirstriki það, þá er ég ekki að boða aukna skattheimtu á ferðaþjónustuna. Það sem ég átti við og sagði var að tekjuúrræði hefðu verið vannýtt í fortíðinni. Við hefðum átt að stíga einhver slík skref þegar vel gekk í þeirri grein. Það er glatað tækifæri hvað það varðar. Það getur vel verið að ekki sé rétti tíminn að innleiða það núna á þessu stigi hagsveiflunnar.

Mig langar sömuleiðis að fara yfir forsendurnar á næsta ári, þ.e. á hverju þessi nýja stefna byggir, sem ég held að verði kannski ekki langlíf heldur. Það væri alveg hrikalegt að við færum að breyta fjármálastefnunni, sem á að vera stabíl í fimm ár, á hverju einasta ári. En það er mjög áhugavert að hér er gert ráð fyrir að gengi krónunnar haldist óbreytt næstu fimm árin. Í hvaða heimi eru menn eiginlega? Ekki hefur raungengi nokkurs gjaldmiðils innan OECD sveiflast jafn mikið og krónunnar undanfarin 15 ár. Að krónan sveiflist kemur engum á óvart en hér er gert ráð fyrir að gengi krónunnar verði óbreytt næstu fimm árin. Því er sömuleiðis spáð að verðbólgan verði svipuð og spáð hafði verið. Það er mikil óskhyggja. Við sjáum nú þegar að krónan hefur fallið á einu ári um 13 prósentustig. Það er svona þumalputtaregla að einn þriðji af því fer inn í verðlagið. Bara sú lækkun ætti að skila sér til eins til tveggja ára í 4% verðbólguhækkun. Auðvitað vona ég að það gerist ekki. Ég held að gengið muni jafnvel gefa meira eftir í haust þegar ferðamannastraumurinn minnkar aðeins.

Það er sömuleiðis forsenda hér um að hagvöxtur eigi að taka mjög fljótt við sér á næsta ári og næstu árum. Það er líka heilmikil bjartsýni. Viðskiptakjör eru að versna úti í heimi. Það er óróleiki í hagkerfinu víða og við blasir erfið staða í ferðaþjónustunni, hér er flugfélag farið á hausinn, önnur flugfélög hafa verið að draga saman, við sjáum loðnubrest, breytt hitastig sjávar þannig að það eru talsverðar blikur á lofti hvað þetta varðar. Atvinnuleysi á að breytast lítið frá fyrri spám þrátt fyrir að bara í mars urðu 1.600 manns atvinnulausir. Það voru um 6.800 manns atvinnulausir. Það bættust við 1.600 manns. Þetta er eins og að allir á vinnumarkaði á Ísafirði hefðu misst vinnuna á einu bretti. Hvert prósentustig í auknu atvinnuleysi kostar 6,5 milljarða, þannig að þetta er líka vafasöm forsenda að mínu mati.

Herra forseti. Við þurfum að fá betri umræðu um þetta í nefndinni og sömuleiðis kannski í þessum sal, um þær forsendur sem tillagan byggir á.

Við sjáum sömuleiðis að samhliða þessari breytingu á stefnu erum við að fara að ræða fjármálaáætlunina. Við eigum eftir að fá tillögur ríkisstjórnarinnar um breytingar á fjármálaáætluninni. Við erum annars vegar að tala um stefnuna og svo áætlunina. Í áætluninni sjáum við pólitíkina og við sjáum nú þegar í fjármálaáætlun, sem mun að sjálfsögðu breytast eitthvað út af því að hagtölurnar eru breyttar, að þar voru nú ýmis slæm tíðindi. Eins og bara það að næstu fimm árin áttu fjármunir í húsnæðisstuðning að lækka um 19% samkvæmt núgildandi áætlun. Samgöngumál áttu að lækka um 15% næstu fimm árin. Menning og listir og æskulýðsmál átti að lækka um 7%. Hjúkrunarþjónusta, hjúkrunarheimilin áttu að lækka um 4% næstu fimm árin. Þetta eru allt tölur sem eiga bara eftir að versna vegna þess að þetta er áætlun sem byggðist á eldri hagspá sem nú er orðin talsvert svartari.