149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[16:36]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við höfum rætt það áður hvort hin undirliggjandi hagspá fjármálaáætlunar, eða eftir atvikum fjármálastefnu, sé of bjartsýn og hvort það kunni að vera rétt, sem hv. þingmaður sannarlega nefndi hér á sínum tíma, að hagþróunin yrði með eitthvað öðrum hætti. En þegar sú umræða fór fram á sínum tíma lagði hv. þingmaður til meiri ríkisútgjöld og hækkun skatta. Ef maður mátar þá stefnu sem hann þá talaði fyrir við þann veruleika sem nú blasir við er efni til að spyrja: Hefði verið skynsamlegt að taka 25–35 milljarða í viðbótarskatta og vera með það núna í gildi og vera með útgjaldastigið hærra en raun ber vitni? Hefði það verið góð stefna? (Forseti hringir.) Og hvað eigum við að gera annað en að byggja á opinberum hagspám?