breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Herra forseti. Á það var einmitt bent í fyrra, m.a. af fjármálaráði, að ríkisstjórnin væri að fara verstu leiðina, væri að hækka ríkisútgjöld á vissum sviðum, skilja önnur eftir og lækka skatta á sama tíma. Það var gert á tímum mikillar þenslu. Á þetta var bent sem hagstjórnarmistök. Það sem við í Samfylkingunni lögðum til var að við gætum hækkað vissa skatta en ættum ekki að hækka skatta almennt á fólk í landinu. Við töluðum fyrir því, og gerum enn, að auðlindagjöld gætu verið hærri hér, auðlegðarskattur sem var upp á 10 milljarða þegar hann var getur alveg verið hærri. Byrjum á 4 milljarða kr. auðlegðarskatti. Þetta telur allt inn í ríkisreksturinn.
Svo má ekki gleyma því að þegar við vanrækjum opinberar fjárfestingar kemur það niður á hagvextinum til lengri tíma. Það er góð fjárfesting að fjárfesta í hinu opinbera því að ef við vanrækjum það kemur það niður á okkur í framtíðinni. Ég veit að það er engin einföld leið hvað þetta varðar og ég veit að það er margt í þessari niðursveiflu sem er ekki á ábyrgð ráðherrans. Engu að síður (Forseti hringir.) mætti margt fara betur í hagstjórninni og við í Samfylkingunni og aðrir flokkar höfum bent af ábyrgð á hvaða leiðir væri hugsanlega hægt að fara.