149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[16:38]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ef við vorum með áætlun sem hentaði illa á hagvaxtarskeiði, að vera þá að lækka skatta, bendi ég á að nú er allt breytt og nú er einmitt góður tími til að lækka skatta. Við gerðum ráð fyrir því að skattalækkanir tækju gildi í skrefum á áætlunartímabilinu. Með þessum sömu rökum, með þeim rökum sem voru notuð gegn skattalækkun á sínum tíma, hljóta menn að vera sammála skattalækkuninni núna. Þess vegna er undarlegt að hv. þingmaður tali enn og aftur fyrir skattahækkunum eða hefði hann kannski ekki viljað lækka skattana aftur sem honum fannst svo góð hugmynd að hækka um 25–35 milljarða í fyrra og hittiðfyrra? Það dregur að sjálfsögðu kraft úr hagkerfinu.

Ég verð bara að segja gagnvart öllum þeim gagnrýnisröddum sem hafa komið fram sem margar eru uppbyggilegar og góðar til lengri tíma og við tökum með okkur, m.a. við undirbúning þessarar stefnu, hef ég ekki séð merkin um að við höfum farið út af sporinu. Við sjáum þau ekki í kaupmætti heimilanna. (Forseti hringir.) Við sjáum ekki merkin um að við höfum verið á rangri leið í skuldaþróun ríkisins, við sjáum þau heldur ekki í verðbólgu og hvorki í vaxtastiginu né lánskjörum ríkisins.