149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[16:40]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Sér hæstv. ráðherra engin merki um að við höfum farið út af sporinu? Við upplifum hér mesta viðsnúning í hagkerfinu í tæplega 30 ár, að hruninu undanskildu. Við sjáum að flestar hagspár eru á niðurleið, eru um að horfur séu að versna. Margar hagspárnar eru meira að segja að mínu mati of bjartsýnar. 1.600 manns urðu atvinnulaus í síðasta mánuði. (Gripið fram í: Hvað með …) Við sjáum að hagstjórnin í dag er ekki neitt til að hrópa húrra fyrir.

Aðeins varðandi skattana. Samfylkingin stóð svo sannarlega fyrir skattalækkunum þegar hún var við stjórnvölinn en við höfum lækkað skatta á venjulegt fólk. Við höfum lækkað tekjuskatt einstaklinga með því að hækka persónuafsláttinn. Við lækkuðum meira að segja fjármagnstekjuskattinn, en hvernig gerðum við það? Við innleiddum frítekjumark sem afnám þess skatts á 90% skattgreiðenda. Við höfum meira að segja lækkað skatta á fyrirtæki, en hvernig gerðum við það? Við innleiddum skattafrádrátt vegna fjárfestinga í hlutabréfum í nýsköpunarfyrirtækjum. Við lækkuðum virðisaukaskatt með átakinu Allir vinna. (Forseti hringir.) Það er vel hægt að lækka skatta, herra forseti, en við skulum gera það í þágu fólksins í landinu en ekki í þágu auðmanna og stórútgerðar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)