breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Herra forseti. Ég hlustaði af athygli á ræðu hv. þingmanns. Það olli mér vonbrigðum hvernig hann nálgast viðfangsefnið. Nú, eins og oft áður, er glasið hálftómt. Það er yfirleitt þannig hjá hv. þingmanni, því miður. Ég vil bara spyrja hv. þingmann: Hvaða tillögur er hann með? Við erum að glíma við niðursveiflu í efnahagslífinu, um það verður ekki deilt. Ég vona að hv. þingmaður deili þeirri von og þeirri bjartsýni sem ég hef þó, þ.e. að þetta verði mjög tímabundin niðursveifla. Telur hv. þingmaður eðlilegt að stjórnvöld grípi til aðgerða og hvað vill hann þá sjá að verði öðruvísi en gert er í nýrri fjármálastefnu og endurskoðun á þeirri fjármálaáætlun sem liggur fyrir?
Það er eitt að gagnrýna en annað að koma með uppbyggilegar ábendingar (Forseti hringir.) sem því miður virðist ekki henta hv. þingmanni mjög vel.