149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[16:44]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er auðvitað hægt að vera með langa runu af innihaldslausum orðum. Ég var að spyrja hv. þingmann hvernig hann teldi rétt að bregðast við þeim aðstæðum sem nú eru uppi. Hann gefur þá til kynna að hann velti fyrir sér að sækja aftur í gamlan sarp, sinn eigin sarp, sem er að hækka skatta á almenning og fyrirtæki. Það er það sem hv. þingmaður ætlar að grípa til, en það er leið sem menn hafa notað hér með skelfilegum afleiðingum.

Er það rétt að einu úrræðin sem Samfylkingin, og hv. þingmaður sem fulltrúi hennar í fjárlaganefnd, hefur fram að færa við umræðu um nýja fjármálastefnu eða endurskoðun hennar séu að hækka álögur á almenning og fyrirtæki? Já eða nei? Eða eru einhver önnur úrræði í hans huga, t.d. (Forseti hringir.) að gefa aðeins eftir af því sem tekið er af almenningi og fyrirtækjum?