breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson hóf ræðu sína á því að nefna að stefna ríkisstjórnarinnar ætti að duga í fimm ár en hefði bara dugað í rúmlega ár. Hann fylgdi því svo eftir með því að segja að hér hefði orðið mesta áfall í 30 ára hagsögu. (Gripið fram í.) Hv. þingmaður leiðréttir mig ef þetta var ekki á þessum nótum.
Síðan færði hv. þingmaður eiginlega rök fyrir því að við værum að fylgja eftir þeirri þjóðhagsspá sem liggur til grundvallar. Ég er sammála hv. þingmanni um að við skattleggjum okkur sannarlega ekki út úr þessari snöggu niðursveiflu. Mig langar að spyrja út í áætlanir almennt. Eru áætlanir ekki einmitt til þess að geta brugðist markvisst við breytingum í stað þess að binda okkur við fyrirframgefnar niðurstöður, til þess að geta breytt skynsamlega þegar grundvallarforsendur hafa brostið eins og í þessu tilviki? (Forseti hringir.) Er það ekki sú festa sem grunngildi laganna knýja á um?