149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[16:49]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Hv. þingmaður kann að hafa misskilið spurninguna. Ég er að tala um festuna í fjármálastefnu ríkisstjórnar og það er það sem skiptir máli. Ég er að tala um þann fyrirsjáanleika sem er nauðsynlegur til að peningamálastefnan togi í sömu átt. Við sáum að Seðlabankinn lækkaði vexti nýverið. Það kann að vera vegna þess að í lagaumgjörðinni almennt er aukin festa.

Hv. þingmaður nefnir að aðhaldsstigið hafi ekki verið nægilegt og að fjármálaráð hafi gagnrýnt það. Það er sannarlega rétt að afkoman var ekki mikil en hún tekur þó við þessari snöggu niðursveiflu að þremur fjórðu hlutum. Síðan er byggt inn í og verið að bregðast við gagnrýni fjármálaráðs með óvissusvigrúmi, ekki satt, hv. þingmaður? Ég velti því upp þeirri spurningu hvort hv. þingmaður telji að þetta óvissusvigrúm hefði átt að vera meira.