149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[16:50]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það er mjög ánægjulegt að óvissusvigrúmið hafi verið nefnt. Ég gat ekki komið inn á það í ræðu minni. Óvissusvigrúmið er nýtt hugtak, það er ekki í lögunum. Að mínu mati er hér einfaldlega verið að fela fyrirhugaðan halla hjá hinu opinbera. Hér er verið að setja hallann til hliðar. Á sama tíma getur ráðherra sagt: Já, fjármál ríkisins eru í jafnvægi eða fyrir ofan núllið. Það finnst mér ekki góð vinnubrögð eða góð pólitík. Hvort óvissusvigrúmið ætti að vera meira eða hærra verður bara að koma í ljós. Þetta óvissusvigrúm má sjá í fyrstu töflunni í fjármálastefnunni og er mjög sérkennilegt, a.m.k. að mínu mati. Það er sérkennilegt að þetta sé einfaldlega ekki í afkomutölum hins opinbera.

Það er holur hljómur í því að tala um fyrirsjáanleika. Við töluðum fyrir örfáum mánuðum nákvæmlega eins og hér er verið að gera og nú erum við að tala um að höggið á hið opinbera verði 40–46 milljarðar, ekki bara 2019 þegar niðursveiflan er heldur líka næstu fimm árin. Hver er fyrirsjáanleikinn í því? (Forseti hringir.) En ríkisstjórnin skellir skollaeyrum við öllum varnaðarorðum og vill (Forseti hringir.) bara sjá sólskinið. Á sama tíma (Forseti hringir.) bendir sérfræðingur eftir sérfræðing og stjórnarandstöðuþingmenn á að hugsanlega dragi einhvern tímann ský fyrir sólu.

(Forseti (ÞorS): Forseti minni á umsaminn ræðutíma sem er ein mínúta í hverju andsvari.)