149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[16:52]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar hér upp í andsvör og þau eiga jafnvel frekar erindi við stjórnarþingmenn ef staðan væri sú að einhver þeirra hefði hætt sér á mælendaskrá en af þeim átta sem nú eru þar á lista er enginn stjórnarþingmaður. Ég verð því að spyrja hv. þm. Ágúst Ólaf Ágústsson.

Ég velti fyrir mér þessum orðum í þingsályktunartillögunni um svigrúmið sem hv. þingmaður ræddi. Það kemur fram að menn þurfi að draga lærdóm af þeirri stöðu sem upp sé komin, byggja mögulega meira svigrúm inn í fjármálastefnuna og hafa það gagnsætt. Mig langar til að heyra hvaða augum hv. þingmaður lítur það. Það kom reyndar aðeins fram í síðasta andsvari en ég spyr hvort þetta ætti ekki að gera með það fyrir augum að koma í veg fyrir að svona staða komi aftur upp. Hvað sem mönnum finnst um stjórnmálin og stjórn og stjórnarandstöðu þá er það ekki boðlegt að við séum hér endurtekið og alltaf í baksýnisspeglinum (Forseti hringir.) af því að plöggin sem eru lögð fram hafa stuttan líftíma.

Sér hv. þingmaður það fyrir sér að við gætum (Forseti hringir.) í alvöru náð breiðri samstöðu um að vinna þetta öðruvísi með meira gagnsæi og meira svigrúmi og að það væri til heilla?

(Forseti (ÞorS): Enn minnir forseti á ræðutímann.)