breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Herra forseti. Já, ég held það. Fyrst ég á að fara að svara fyrir stjórnarþingmenn sem ég er auðvitað ekki að fara að gera, ég hef reyndar mikið álit á formanni fjárlaganefndar, Willum Þór Þórssyni, þá held ég að við deilum þeirri skoðun, svo að ég svari spurningu hv. þingmanns og tali líka til formanns nefndarinnar, hversu mikilvægt það er að virða grunngildi opinberra fjármála. Það eru þessi fimm gildi; sjálfbærni, varfærni, stöðugleiki, festa og gagnsæi. Í raun er ekkert af þeim uppfyllt, ef við skoðum þetta af fullri sanngirni, en við þurfum að virða þau. Fyrst við erum að setja þessi lög — þau eru í sjálfu sér ekki gömul, lög um opinber fjármál eru frá 2015 — þá skiptir máli að vel takist til. Ég held að það sé einmitt ekki að gerast núna.
Við eigum að vera mjög viljug til að breyta bæði stefnu og áætlun ef þörf krefur. Við sáum það t.d. með fjármálaáætlun í fyrra. Við fengum fjölmargar umsagnir en fjárlaganefnd breytti engu. Það er svolítið sérkennilegt að við séum að halda (Forseti hringir.) umfangsmikla fundi á vegum fjárlaganefndar og fá alla þessa umsagnaraðila sem gefa álit um (Forseti hringir.) 5.000 milljarða kr. áætlun og við gerum engar breytingar í meðförum þingsins. Það er svolítið sérkennilegt að mínu mati.