149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[16:55]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka andsvarið og vonast til þess að þegar rykið sest eftir þessa umræðu náum við sameiginlega að draga lærdóm af þessu og laga vinnubrögðin. Mig langar til að biðja hv. þingmann að setja upp spádómshattinn. Hann nefndi áðan hagræðingaraðgerðir sem væru fyrirsjáanlegar í komandi fjármálaáætlun. Hér hefur átt sér stað fordæmalítil aukning ríkisútgjalda í ýmiss konar rekstur og síðan stórbrotin loforð um innviðauppbyggingu. Það er ekki einfalt verkefni sem bíður hæstv. ríkisstjórnar. Hverjir taka höggið á sig, eins og hv. þingmaður orðaði það áðan? Hvað sér hv. þingmaður fyrir sér?

Ég biðst hv. þingmann forláts á því að fara í þessar æfingar hér en ef það eina sem er í boði er að eiga slíkar samræður eingöngu við stjórnarandstöðuþingmenn þá verður svo að vera. Ég bið hv. þingmann að fara í þessar æfingar með mér.