breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Herra forseti. Spennitreyja, spennitreyja, spennitreyja, spennitreyja, spennitreyja — tíu sinnum kom orðið spennitreyja fyrir í umsögn fjármálaráðs um fjármálaáætlun. Jú, við erum að setja okkur sjálf í ákveðna spennitreyju. Þetta segir fjármálaráð sem er sjálfstætt ráð sem hæstv. fjármálaráðherra skipar þannig að vandinn getur verið heimatilbúinn hvað þetta varðar.
Hv. þingmaður spyr líka hvernig við mildum höggið. Jú, við þurfum að milda höggið. Ég er talsmaður þess að við eigum að nota ríkisfjármálin til þess. Við eigum að dusta rykið af kenningum Keynes sem einmitt talaði um hlutverk hins opinbera í niðursveiflu, að við innleiðum sveiflujafnandi hlutverk ríkisins til að verja velferðarkerfið, skólana o.s.frv. Það gerum við bæði með breytingum á áherslum í ríkisfjármálum og m.a. í skattheimtu. Við getum ekki talað um ríkisfjármál án þess að tala um skatta og hvar skattbyrðin eigi að vera og hvort við eigum að draga úr henni eða auka hana. Það er stóra pólitíkin (Forseti hringir.) í þessu máli sem hægri menn eru allt of feimnir við að ræða að mínu mati.