breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegur forseti. Stígur á stokk formalistinn mikli sem vill bara að farið sé að lögum því að hér er verið að setja ákveðið fordæmi. Hér er gripið til endurskoðunarákvæðis laga um opinber fjármál í fyrsta skipti og það er tiltölulega strangt orðalag í þeirri grein, um þjóðarvá og efnahagshrun og álíka aðstæður, sem þó eru ekki taldar upp en þær hljóta að þurfa að vera álíka alvarlegar og þau hugtök sem þarna er um að ræða.
Í ákvæðinu er einnig talað um að endurskoðuð fjármálastefna — ekki breyting á fjármálastefnu heldur endurskoðuð fjármálastefna — eigi að gilda til fimm ára. Þetta er hvorki endurskoðuð fjármálastefna né gildir hún til fimm ára af því að hún virkar aftur í tímann og varla er hægt að telja þau ár með.
Í umræðunni hefur komið fram að það sé varfærni að endurskoða fjármálastefnu enda var fyrri fjármálastefna greinilega ekki nægilega varfærin og það birtist mjög vel í því að orðið varfærni kemur þrisvar sinnum fram í gildandi fjármálastefnu. Einu sinni er tekið fram að menn eigi að vera varfærnir, einu sinni er það skilgreint hvað varfærni sé og einu sinni til að nefna að gerð hafi verið frávikagreining, þó að ekki hafi verið tekið tillit til þess að ef hún yrði að veruleika yrði svigrúm til þess að bregðast við því. Verið er að bæta úr því núna með einhverju óvissusvigrúmi sem er ágætishugmynd, að ég tel. Það mætti kannski vera þak í hina áttina, á gjöld, þannig að ef hagvöxtur yrði miklu meiri en spáð hefði verið myndi það taka frá þennan freistnivanda, sem oft hefur verið talað um, fyrir ríkisstjórnina til að grípa til þessara auknu tekna af fullri hörku. Það væri einhver bremsa í þá átt líka.
Ástandinu hefur verið líkt við, t.d. í eldhúsdagsumræðum af nefndarmanni í fjárlaganefnd, varaformanni þar, ákveðna snertilendingu í hagkerfinu. Á sama tíma erum við að bregðast við með endurskoðun á fjármálastefnu út af þjóðarvá eða efnahagshruni. Það kallar varaformaður snertilendingu í efnahagsmálum. Þetta tvennt fer ekki saman. Mér finnst rosalega eðlilegt að kalla eftir rökstuðningi fyrir því sem segir í endurskoðunarákvæðinu — sem virðist þó ekki vera farið eftir þó að það sé það eina sem hægt er að nota til að leggja fram nýja fjármálastefnu — um tiltæk úrræði. Hvernig hefur verið brugðist við með öllum tiltækum ráðum? Hvaða svigrúm gefa tiltæk ráð til að bregðast við þeirri niðursveiflu sem er í gangi? Það er ekkert fjallað um aðrar hugsanlegar aðgerðir og hversu langt þær myndu ná. Ekki er heldur fjallað um mögulegt hlutverk varasjóðs en hann hækkar um 20 milljarða á milli sömu ára í gildandi fjármálaáætlun og þeirri sem nú er lögð fram á Alþingi til umfjöllunar. Það ætti að vera hægt að grípa til hans að einhverju leyti. Það er ekkert útskýrt hversu stóran hluta af niðursveiflunni varasjóðurinn er í raun að grípa. Eftir stöndum við með rosalega margar spurningar um það hvernig verið sé að fjármagna þessa niðursveiflu, ef menn ætla að koma sér niður á núllið og standa við þau verkefni sem búið er að leggja fram í fjármálaáætlun. Þegar kemur að spurningunni um fjármálaáætlun fáum við þau skilaboð í framsöguræðu og andsvörum að frysting Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, sem var lögð fram sem stefna stjórnvalda í fjármálaáætlun til Alþingis, er allt í einu ekkert í kortunum. Hún var bara tilraun, prufa, ef samningar skyldu nást um það á meðan Alþingi væri að fjalla um fjármálaáætlunina. Það er ekki boðlegt að Alþingi þurfi að fjalla um stefnu stjórnvalda sem raungerist ekki, að þarna séu einhver svona Schrödingers-áhrif í gangi. Það er ekki boðlegt fyrir Alþingi að þurfa að glíma við slíkt.
Við glímum nefnilega við gríðarlegan skort á gagnsæi, bæði í fjármálastefnu varðandi grunngildin, hvernig þau eru uppfyllt, eins og ég talaði um með varfærnina áðan. Það er ekkert útskýrt af hverju fjármálastefnan byggist á varfærnislegum sjónarmiðum. Það er augljóslega ekkert gagnsæi í fjármálastefnunni og hvað þá þessari breytingu á þingsályktuninni um fjármálastefnu. Hvaða rök á ég að leita í varðandi þessi afkomuviðmið og þessar breytingar? Er rökin að finna í því að verið er að breyta núgildandi fjármálastefnu, eru það rökin fyrir því að þessi grunngildi séu uppfyllt? Það er ekki útskýrt, enn og aftur, hvernig farið er eftir grunngildunum. Jú, það er útskýrt að það sé varfærni að breyta fjármálastefnunni en fjármálastefnan á upphaflega einmitt að sýna varfærni. Að mínu viti er verið að viðurkenna að ekki var farið fram af varfærni í gildandi fjármálastefnu.
Það er svo margt í þessu máli sem veldur mér erfiðleikum, ekki bara mér sem formalista. Það eru ákveðnar mótsagnir í þessu. Framlagning stefnunnar á að tryggja þessi grunngildi en síðan eiga grunngildin að vera tryggð með því að breyta henni. Þetta tvennt gengur ekki upp. Í tengslum við fjármálaáætlun sem á að byggja á fjármálastefnu erum við nú á allra síðustu metrunum með afgreiðslu á fjármálaáætlun. Við erum búin að fá alla gesti á fund um fjármálaáætlunina og við sjáum fram á rosalegar breytingar á henni. Við höfum ekki hugmynd um hvaða breytingar það eru, á hvaða málefnasviðum, hverjar upphæðirnar eru á málefnasviðum, eða hvort breytingarnar eru bara á afganginum og varasjóðnum. Miðað við þær tölur sem púslað var saman, af afganginum, varasjóðnum og ýmsu, gæti hugsast að það dygði fyrir þessum mun. Maður er ekki viss, maður sér það ekki, t.d. af því að fjármálaáætlunin sjálf er ekki gagnsæ. Ekki er hægt að ganga í kostnaðar- og ábatagreiningar sem eiga að vera í fjármálaáætluninni. Það er ekki hægt að skoða forgangsröðunarlistann og segja: Allt í lagi, ef niðursveifla verður og við náum ekki alveg eins miklum tekjum á móti útgjöldum til að uppfylla stefnuna sem lögð var fram í fjármálaáætlun þá sjáum við einfaldlega í forgangsröðunarlistanum í hvaða verkefni verður ekki farið. Þetta vantar algerlega. Maður er alveg í myrkrinu með það hvað í ósköpunum við erum að glíma við, bæði hvað varðar fjármálastefnu og fjármálaáætlun, og sú síðarnefnda kemur til með að taka breytingum sem við höfum sama og engan tíma til að fá umsagnir um. Breytingarnar verða samt upp á tugi milljarða. Það er bara eitthvað sem á að kvitta upp á í lok þings og skófla hér í gegn.
Það hvernig farið er með fjármálastefnu, þar sem í rauninni er ekki farið eftir lögum um opinber fjárlög heldur verið að túlka til hliðar hvernig megi endurskoða fjármálastefnuna aftur í tímann og ýmislegt svoleiðis, leiðir af sér að við lendum í sömu vandamálum með fjármálaáætlun. Hún byggist á stefnunni og ógagnsæi í fjármálastefnu getur af sér ógagnsæi í fjármálaáætlun.
Bara til að nefna örfá dæmi um vandamálin sem við erum í: Við höfum t.d. ekki fengið svar við því hvaða áhrif lífskjarasamningarnir hafa á fjármálaáætlun. Það virðist vera eins og mest af þeim sé þegar í fjármálaáætlun en nú er náttúrlega verið að breyta henni út frá þessari fjármálastefnu þannig að spurningarmerkið við það hvaða áhrif lífskjarasamningarnir hafa verður enn stærra. Vissulega erum við í gríðarlegri innviðaskuld og miðað við fjármálastefnuna eins og á að breyta henni núna er ekki gert ráð fyrir því að lántökur komi á móti til að standa undir þeim framkvæmdum. Ég veit ekki af hverju, það má íhuga að hafa einhvers konar jafnvægi þar á milli. Jú, það er ekki verið að greiða skuldir eins mikið niður og gert var ráð fyrir en það er svigrúm til að koma til móts við svona sveiflu með lánum á móti í staðinn fyrir — ja, hvað sem á nú að gera, það sést alla vega ekki. (Forseti hringir.)
Tíminn er að verða búinn. Ég bið um að verða aftur settur á mælendaskrá. Takk fyrir í bili.