149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[17:08]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir prýðisræðu. Hann útlistaði sig hér sem mann formsins og ég get alveg tekið undir það. Í gegnum tíðina, í vinnu með hv. þingmanni í hv. fjárlaganefnd, þá er hv. þingmaður mjög glöggur á lögin og form laganna og það skiptir máli. Það ætla ég fyrst að segja og þakka fyrir það.

Ég er hins vegar hugsi yfir því að hv. þingmaður fer inn á grunngildin sem eru hluti af forminu og eiga að stýra för þegar við tökum ákvarðanir sem byggja á þessu umhverfi sem er stefna og áætlanir. Ég met einn þátt sem dæmi um það að við séum að læra í þessu ferli. Fjármálaráð hefur gagnrýnt ríkisstjórn fyrir að lenda í gólfi stefnunnar þar sem aðhaldsstigið birtist í mjög lágum afgangi, skulum við segja, um 1% af vergri landsframleiðslu í þessari stefnu. Nú fáum við nýja hagspá sem segir að hér sé framboðsskellur, snögg niðursveifla, þar sem óvissuþættir hafi raungerst. Við þurfum þá að bregðast við því, bregðast við breyttum forsendum. Þá erum við komin að spurningunni: Eigum við að binda okkur þannig séð í forminu og fara í ráðstafanir á fjármálaáætlun sem taka við þessum 40 milljarða tekjuskelli eða eigum við að segja: Eigum við ekki að bregðast við hér og (Forseti hringir.) horfa á stefnuna? Eigum við ekki, í staðinn fyrir að binda okkur í fyrirframgefna niðurstöðu, að bregðast við breyttum forsendum og horfa á skynsemina, sjálfbærni og stöðugleika?